Páskar
Sjö af átta söfnum Borgarbókasafnsins verða lokuð alla páskahátíðina, að laugardeginum 4. apríl meðtöldum.

Páskaopnun

Kæru notendur, sjö af átta söfnum Borgarbókasafnsins verða lokuð alla páskahátíðina, að laugardeginum 4. apríl meðtöldum.

Borgarbókasafnið Úlfarsárdal verður opið án afgreiðslu á opnunartíma Dalslaugar og því tilvalið að gera sér glaðan dag í fríinu, skella sér í sund og slaka svo vel á, á bókasafninu á eftir.

Opnunartíma sundlaugarinnar má finna hér https://reykjavik.is/sundlaugar/afgreidslutimi

Hefðbundinn opnunartími á öllum bókasöfnum þriðjudag og miðvikudag í þessari viku og því öll hvött til að ná sér í góða bók, borðspil eða vínylplötu til að njóta yfir hátíðarnar, á meðan nartað er í súkkulaðiegg.