
Þessar bækur stóðu upp úr hjá börnunum!
Opinberað hefur verið hvaða bækur hlutu Bókaverðlaun barnanna 2026.
Árlega kjósa börn þær bækur sem þeim þykja skemmtilegastar, áhugaverðastar eða bestar í sérstakri kosningu sem fer fram á almennings- og skólabókasöfnum um allt land. Alls fengu hvorki meira né minna en 127 bækur kosningu að þessu sinni.
Voru úrslit kosningarinnar kunngjörð á hinni spennandi og fjörugu hátíð Bókaverðlaunum barnanna, sem fór fram í 25. sinn, föstudaginn 27. mars. Verðlaunað var fyrir þær bækur sem lentu í 10 efstu sætunum hjá börnunum og veittu ýmist höfundar, myndhöfundar, þýðendur og bókaútgefendur viðurkenningunni viðtöku við hátíðlega athöfn á Borgarbókasafninu Gerðubergi.
Verðlaunin eru ekkert án barnanna sem kjósa og það var því við hæfi að draga út tíu heppna þátttakendur í Bókaverðlaunum barnanna og fengu þau eina af 10 efstu bókunum í verðlaun á hátíðinni í dag.

Í lokin sýndu hressir krakkar úr Dansskóla Brynju Péturs dansatriði við mikla hrifningu gesta.

Eftirfarandi bækur hlutu flest atkvæði og eru þær birtar hér í stafrófsröð:
Barcelona er frábært. Höfundur Simon Mugford. Myndlýsing Dan Green. Þýðing Guðni Kolbeinsson.
Birtingur og símabannið mikla. Höfundur Gunnar Helgason. Myndlýsing Elías Rúni.
Dagbók Kidda klaufa : sull og bull. Höfundur Jeff Kinney. Þýðing Helgi Jónsson.
Ekki fá þér hamstur. Höfundar Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Bragi Páll Sigurðarson. Myndlýsing Addi nabblakusk
Ekki opna þessa bók: hún lyktar illa. Höfundur Andy Lee. Myndlýsing Heath McKenzie. Þýðing Huginn Þór Grétarsson.
Hundmann: hverjum kúlan rúllar. Höfundur Dav Pilkey. Þýðing Sigurgeir Orri Sigurgeirsson.
Lára fer á hestbak. Höfundur Birgitta Haukdal. Myndlýsing Anahit Aleksanian og Elen Sargsyan.
Liverpool: nýr þjálfari, nýtt lið, nýir sigrar! Höfundur Illugi Jökulsson.
Orri verður óstöðvandi. Höfundur Bjarni Fritzson. Myndlýsing Þorvaldur Sævar Gunnarsson.
Skólastjórinn. Höfundur Ævar Þór Benediktsson. Myndlýsing Elín Elísabet Einarsdóttir.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 4116146