Ylfa og Úlfur, lesum allan heiminn!

Fimmtudaginn 25. mars var sleginn lokatónninn í lesskilningsverkefninu Ylfa og Úlfur, lesum allan heiminn, tilraunaverkefni Borgarbókasafnsins Úlfarsárdal og Dalskóla. Markmið var að efla málþroska, læsi og lesskilning barna í hverfinu þar sem notast var við listsköpun og leiklist. Leiðarljós verkefnisins var að gera lestur aðgengilegri, áhugaverðari og meira lifandi fyrir börn í gegnum leik, tjáningu og samtal um texta og myndlist. Í Dalskóla eru tæplega 700 börn á leik- og grunnskólaaldri en Borgarbókasafnið gegnir jafnframt hlutverki skólabókasafns.

Unnar Geir Unnarsson, deildarstjóri bókasafnsins í Úlfarsárdal, leiddi verkefnið en hann er menntaður leikari, leikstjóri og menningarstjóri en auk þess vann leiklistarkennarinn Rósa Björk Ásmundsdóttir með hópnum.

Unnið var með bókina Tjörnin eftir Rán Flygenring þegar kom að textavinnu og samspili texta og myndlistar í bókum. Eftir að hafa greint og unnið með textann var mörgum spurningum enn ósvarað hjá nemendum og því brugðið á það ráð að bjóða Rán í heimsókn og fræðast um tilurð og gerð Tjarnarinnar. Þá sýndu börnin höfundinum myndir sem þau höfðu gert sem innlegg að Tjörnin 2, framhaldsbók.  

Þá bauð leiklistar-og myndlistarfólk nemendum í 3.–6. bekk til sín í nokkrar vinnustofur. Þessi skipulagða þátttaka tryggði að hvert barn fékk tíma og rými til að taka virkan þátt í skapandi vinnu, kynnast textunum á eigin forsendum og byggja upp traust í litlum hópum.

Hefðbundnar kennsluaðferðir ná ekki til allra

Lestur og lesskilningur eru undirstaða alls náms og almennrar þekkingarleitar. Áhyggjur af minnkandi lestraráhuga barna hafa verið áberandi í samfélagsumræðunni, og ljóst að hefðbundnar kennsluaðferðir ná ekki til allra nemenda. Sérstaklega er mikilvægt að styðja við börn sem eiga annað móðurmál en íslensku, svo þau geti tekið fullan þátt í námi og samfélagi.

Í viðtölum við nemendur kom fram að verkefnið jók áhuga þeirra bæði á lestri og myndlist. Þannig hafi æfingarnar gert lesturinn meira lifandi og hjálpað þeim að skilja persónur, söguþráð og samhengi textans betur.

Starfsfólk bókasafnsins og skólans tók einnig fljótt eftir jákvæðum breytingum, sérstaklega meðal þeirra nemenda sem áður höfðu lítið sýnt bókum áhuga. Sú skapandi nálgun að vinna með lesefni í gegnum listir virtist höfða vel til fjölbreytts nemendahóps og skapað aukinn hvata til þátttöku.

Út frá verkefninu var unnið kennsluhefti með aðferðum, leiðbeiningum og hugmyndum að frekari notkun skapandi nálgunar í lestrarkennslu fyrir kennara og bókasafnsfræðinga sem vilja þróa nýjar leiðir til að efla læsi barna.

Verkefnið var styrkt af Bókasafnasjóði.
 

Flokkur
UppfærtFöstudagur, 27. mars, 2026 17:31