Um þennan viðburð

Tími
14:00 - 16:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Tungumál
Íslenska
Bókmenntir
Börn

Útgáfuhóf | Auður Þórhallsdóttir - Miðbæjarrottan; í bókmenntaborginni

Sunnudagur 15. mars 2026

Í tilefni af útgáfu barnabókarinnar Miðbæjarrottan í bókmenntaborg, eftir rithöfundinn Auði Þórhallsdóttur

Auður hefur skrifað og myndskreytt fjórar bækur um Miðbæjarrottuna Rannveigu sem býr í miðborg Reykjavíkur og þekkir þar hvern krók og kima. Í gegnum ævintýri hennar fá lesendur að kynnast borginni, sögu hennar, húsum, innviðum og daglegu lífi á aðgengilegan og leikandi hátt.

Bækurnar fjórar fjalla meðal annars um borgarsögu Reykjavíkur, hús og byggingar í bænum, vatn og innviði borgarinnar og Reykjavík sem bókmenntaborg, og er fjórða bókin gefin út í samvinnu við Reykjavík bókmenntaborg UNESCO.

Sögurnar eru sagðar með hlýju og húmor og tengja saman fræðslu og ímyndunarafl. Miðbæjarrottan er ekki aðeins skálduð persóna heldur leiðsögumaður um menningararf og borgarrými Reykjavíkur. Í gegnum hennar augu verður borgin lifandi og aðgengileg fyrir yngri lesendur. Verk Auðar sameina þannig fræðslu, list og staðarvitund og hafa meðal annars verið nýtt sem grunnur að fjölskyldugöngum um miðborg Reykjavíkur þar sem börn geta fylgt slóðum rottunnar um borgina.

Bækurnar eru gefnar út af Skriðu bókaútgáfu, sjálfstæðri íslenskri útgáfu.

Við bjóðum öll hjartanlega velkomin til að kynna sér bækurnar, hitta höfundinn og fagna útgáfunni.

Viðburður á Facebook.

Nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Elísa Ragnarsdóttir. verkefnastjóri

gudrun.elisa.ragnarsdóttir@reykjavik.is | 411 6145