
Um þennan viðburð
Milli handa, líkamans og lands
Hver brottför er líka koma. Það sem við berum í líkama okkar er þekking sem mótar hvernig við tengjumst heiminum. Í gegnum hreyfingu, leir og leik gefst gestum—sérstaklega þeim sem eru að aðlagast nýjum heimkynnum og samfélögum— kostur á að virkja skynfærin sín og kanna reynslu breytinga. Saman ímyndum við okkur hvernig við ,endurrótum okkur, og framtíð fléttaða tengslum og umhyggju.
Opið öllum—einstaklingum og fjölskyldum. (börn, 7 ára og eldri). Flóttafólk, umsækjendur um alþjóðlega vernd og fjölskyldur innflytjenda eru sérstaklega hvött til þátttöku. Þægilegur klæðnaður sem má óhreinkast æskilegur.
Líkt og allir viðburðir Framtíðarfestivals er vinnustofan ókeypis og hægt er að mæta án þess að skrá sig, þó mælt sé með skráningu. Hafðu samband við Yi Jen Chang til að skrá þig og tryggja þér sæti: yijenchang1988@gmail.com
Viðburðurinn á Facebook
Framtíðarfestivalið fer fram 1. mars til 14. mars 2026 á Borgarbókasafninu Grófinni (miðbænum).
Allir viðburðirnir eru ókeypis og opnir öllum. Dagskráin má finna HÉR.
Frekari upplýsingar:
Fanny Sissoko, Verkefnastjóri Inngildingar og Fræðslu
fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is