Um þennan viðburð

Tími
14:00 - 16:00
Verð
Frítt
Tungumál
Mörg tungumál
Skapandi tækni

Búðu til svefnpoka fyrir símann þinn

Laugardagur 7. mars 2026

Er síminn farinn að fara í taugarnar á þér? Eða gæti verið að síminn sé orðinn þreyttur á þér? Búðu til og skreyttu svefnpoka fyrir símann úr Faraday-efni, sérstöku efni sem hindrar símasamband. Svefnpokarnir eru boð um að ákveða hvenær og hvernig við notum tæknina — og tækifæri til að endurheimta dýrmætan tíma.

Host: ENDURTAKK og Emma Shannon

Samhliða vinnustofunni, veltum við fyrir okkur hvernig tækni getur stutt við baráttuna gegn aldursfordómum og hverjir drifkraftar aldursfordóma eru í samfélaginu. Vinnustofan leiðir saman fólk á ólíkum aldri til að deila reynslu, læra hvert af öðru og efla framtíðarlæsi. Markmiðið er að hvetja til nýrra sjónarhorna í átt að samfélagi framtíðarinnar þar sem aldur er ekki hindrun heldur styrkur.

Viðburðurinn á Facebook

Framtíðarfestivalið fer fram 1. mars til 14. mars 2026 á Borgarbókasafninu Grófinni (miðbænum).
Allir viðburðirnir eru ókeypis og opnir öllum. Dagskráin má finna HÉR.

Frekari upplýsingar:
Martyna Karolina Daniel - Verkefnastjóri – Aðgengi og samfélagsleg þátttaka