Útgáfutónleikar Borgarbókasafnið Spöngin Leifur Gunnarsson
Útgáfutónleikar I Platan "Jólaboð hjá tengdó" með Leifur Gunnarsson

Um þennan viðburð

Tími
13:15 - 14:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
Öll tungumál
Tónlist

Jólaboð hjá tengdó I Útgáfutónleikar

Laugardagur 13. desember 2025

Útgáfutónleikar á jólaplötunni Jólaboð hjá tengdó með Leifi Gunnarssyni og hljómsveit sem inniheldur 8 skemmtileg jólalög.  

Kveikja af plötunni er fertugsafmæli Leifs og umstangið í kringum það að eiga afmæli.  Það að semja og taka upp heila plötu af nýrri, frumsaminni jólatónlist var hans "hreinsun“ við þeirri gömlu gremju. En nú er kominn tími til að fagna desember og hvað er betra en að gera það með tónlist í samstarfi við  frábæra samstarfsaðila.

Á útgáfutónleikunum verður platan flutt í heild sinni og hægt verður að næla sér í plötuna á físísku formi til eigin endurflutninga (nótum og söngbókarformi) en einnig verður hægt að forpanta verkið á vinylplötu en sú útgáfa er væntanleg seint 2026.

Það er frítt á tónleikana og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.

VIðburður á facebook 

Flytjendur á tónleikunum ásamt mér eru: Gunnar Hilmarsson, Jóhann Guðmundsson, Jóhannes Þorleiksson, Ingimar Andersen, Diljá Finnsdóttir, Sunna Gunnlaugsdóttir, Scott McLemore, Bragi Árnason, Páll Sólmundur Eydal, Marína Ósk Þórólfsdóttir, Óskar Þormarsson, Kjartan Baldursson, Jón Ingimundarson, Helga Margrét Clark, Jón Valur Guðmundsson, Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Ingrid Örk Kjartansdóttir (og mögulega fleiri).

Það er vel við hæfi að draga góðan samstarfsaðila til margra ára í verkefni, en tónleikarnir fara fram í Borgarbókasafni í Spönginni, mekka menningar í úthverfum höfuðborgarinnar.