
Um þennan viðburð
Samkenndarsmiðja | ,,Þitt nafn bjargar lífi“
Í þessari smiðju æfum við okkur í að skynja betur veruleika þeirra sem sem upplifa óréttlæti og sæta grófum mannréttindabrotum víðs vegar um heiminn og skoðum við hvernig samkennd getur leitt okkur nær réttlæti og aðgerðum í þágu þolenda.
Réttlæti kviknar þegar samkennd vaknar – þar byrjar breytingin.
Drifkraftur allrar mannréttindabaráttu hefst með því að við reynum að setja okkur í spor þeirra sem sæta slíkum brotum. Samkennd ýtir undir aðgerðir og aðgerðir geta breytt lífum.
Getum við aukið samkennd í íslensku samfélagi? Er samkenndarþreytan að sliga okkur öll?
Þátttakendur samkenndarsmiðjunnar kynnast þolendum mannréttindabrota og býðst að taka þátt í stærstu mannréttindaherferð veraldar.
Átt þú tíma aflögu til að bjarga lífi?
Komdu og vertu með!
Fyrir nánari upplýsingar
Eygló Árnadóttir, fræðslustjóri Amnesty á Íslandi
eyglo@amnesty.is