
Um þennan viðburð
Dægurflugur í hádeginu I Soffía syngur sveitasöngva
Borgarbókasafnið Gerðubergi
Föstudaginn 14. nóvember kl. 12:15-13:00
Borgarbókasafnið Spönginni
Laugardaginn 15. nóvember kl. 13:15-14:00
Dægurflugur í hádeginu verða að þessu sinni helgaðar sveitasöngvum. Soffía Björg Óðinsdóttir, sveitastúlka úr Borgarfirðinum, ber marga hatta en hún starfar sem tónlistarkona, laga- og textahöfundur, gítarleikari og söngkona. Hún mun koma fram ásamt Leifi Gunnarssyni kontrabassaleikara og flytja þau þekkta slagara og lög sem höfðu mikil áhrif á Soffíu í upphafi hennar söngferils. Helstu áhrifavaldar hennar eru stórstirni á borð við, Neil Young, Leonard Cohen, Emiliana Torrini, Sinead O’Connor og John Prine.
Soffía Björg stundaði tónlistarnám við Söngskólann í Reykjavík, FÍH og Listaháskóla Íslands. Hún hefur verið virk í íslensku tónlistarlífi, komið fram með eigin hljómsveitum og annarra og tekið að sér fjölbreytt verkefni, jafnt sem tónsmiður og flytjandi. Þau sem vilja kynna sér feril hennar er bent á að fylgja henni á samfélagsmiðlum:
Facebook
Instagram
Bandcamp
Dægurflugur í hádeginu er tónleikaröð sem Borgarbókasafnið stendur fyrir í samstarfi við Leif Gunnarsson kontrabassaleikara. Þar kemur fram margt af okkar helsta tónlistarfólki og á tónleikunum gefst Reykvíkingum tækifæri til að koma saman, hitta félaga, njóta tónlistar og spjalla við tónlistarfólkið eftir tónleika.
Listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar er Leifur Gunnarsson.
Frítt er inn á tónleikana og eru öll hjartanlega velkomin.
Nánari upplýsingar veita:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | 411 6106
Leifur Gunnarsson, tónlistarmaður
leifurgunnarsson@gmail.com