
Um þennan viðburð
Tími
13:00 - 15:30
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
íslenska, enska
Markaður
Búningaskiptimarkaður
Sunnudagur 5. október 2025
Verið velkomin á skiptimarkað þar sem við skiptumst á búningum fyrir Hrekkjavökuna!
Öllum býðst að koma með búninga á markaðinn og taka svo í staðinn þá búninga sem þeim líst vel á. Það sem einn hefur ekki lengur not fyrir getur verið algjör happafengur fyrir annan.
Þátttaka er ókeypis. Ekki þarf að hafa neitt með annað en það sem á markaðinn á að fara, það verða borð og fataslá á staðnum og kaffi á könnunni.
Öll velkomin.
Viðburður á Facebook
Nánari upplýsingar veitir:
Katrín Guðmundsdóttir, deildarstjóri
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is | 411 6250