
Laust starf | Verkefnastjóri grafískrar hönnunar og samfélagsmiðla
Viltu taka þátt í að miðla öllu því sem er í gangi á Borgarbókasafninu?
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefnastjóri sinnir fjölbreyttum verkefnum sem snúa að grafískri hönnun, ritstjórn og gerð efnis fyrir samfélagsmiðla. Hann vinnur að birtingaráætlun, textagerð, vinnslu á grafísku efni og tekur ljósmyndir fyrir miðla safnsins í nánu samstarfi við kynningarstjóra og hönnunarstjóra.
Verkefnastjórinn heyrir undir deild miðlunar og nýsköpunar og vinnur þvert á allar starfsstöðvar Borgarbókasafnsins. Hann á sæti í ritstjórn kynningarmála sem vinnur saman að mótun og þróun verkefna sem snúa að kynningu á þjónustu, viðburðadagskrá og ýmsum sérverkefnum safnsins.
Fríðindi í starfi
- 36 stunda vinnuvika
- Sundkort
- Menningarkort
- Heilsustyrkur
- Samgöngusamningur
Hæfniskröfur
Háskólapróf á framhaldsstigi (MA/MS) og að lágmarki 2ja ára reynsla í verkefnastjórnun kynningarmála og þá sérstaklega á sviði grafískrar hönnunar og gerð efnis fyrir samfélagsmiðla; Háskólapróf á fyrsta stigi (BA/BS) auk a.m.k. 5 ára starfsreynslu á viðkomandi sérfræðisviði.
- Metnaður, frumkvæði, skipulagshæfni, hugmyndaauðgi og sjálfstæði í starfi.
- Framúrskarandi þekking á kynningarmálum, einkum er varðar grafíska hönnun og samfélagsmiðla.
- Menntun og reynsla af grafískri hönnun og myndvinnslu í forritum á borð við InDesign, Illustrator, Photoshop, Premiere og Canva.
- Hæfni til að skrifa góða texta fyrir samfélagsmiðla.
- Reynsla af skipulagningu, stýringu og framkvæmd kynningar- og markaðstengdra verkefna.
- Færni og geta til að vinna undir álagi og sinna mörgum viðfangsefnum.
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki.
- Gott vald á upplýsingatækni og -miðlun efnis á samfélagsmiðlum.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku og mikil hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, kunnátta í þriðja tungumáli kostur.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaður endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Um er að ræða tímabundna ráðningu til 31. maí 2026 í 75% starfshlutfall.
Launakjör eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar hjá Borgarbókasafninu
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | 411 6115