Bútasaumssmiðja

Um þennan viðburð

Tími
12:30 - 15:30
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
-
Föndur
Spjall og umræður

Sögubútar í Árbæ: Bútasaumssmiðja

Sunnudagur 19. október 2025

Taktu þátt í einstakri bútasaumssmiðju þar sem við tökum höndum saman til að skapa efni sem tengir okkur öll. Á meðan við saumum saman efnisbúta tengjum við líka saman sögur úr hverfinu okkar og tengjumst í gegnum samtöl. Hvernig líður okkur? Hvar viljum við sjá breytingar í umhverfi okkar?

Í þessari skapandi smiðju rannsökum við umhverfi okkar og tengjumst – bút fyrir bút. Komdu og settu þitt mark á sameiginlegt bútasaumsteppi sem segir sögu hverfisins þíns!

Allur efniviður verður á staðnum, skráning er óþörf og þátttakendum frjálst að mæta eins oft og þeir vilja. Öll velkomin óháð aldri og tungumáli!

14. september | Bútasaumssmiðja #1
19. október | Bútasaumssmiðja #2
9. nóvember | Bútasaumssmiðja #3
30. nóvember | Bútasaumssmiðja #4

Viðburður á Facebook

Nánari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel
Verkefnastjóri – Aðgengi og samfélagsleg þátttaka
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is