Prinsessusögustund

Um þennan viðburð

Tími
14:00 - 15:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Tungumál
enska, spænska og pólska
Börn
Föndur

Prinsessusögustund og föndur

Laugardagur 14. júní 2025

Hafmeyjuprinsessan, Fríða og Garðabrúða bjóða upp á töfrandi sögustund á ensku, spænsku og pólsku. Að lokinni sögustund gefst tækifæri til þess að leyfa sköpunarkraftinum að njóta sín í skemmtilegri smiðju þar sem börnin búa til prinsessukórónu sem þau fá að taka með sér heim!

Á milli sögustunda verður söngur og dans og því er gott að vera tilbúinn að hreyfa sig og dansa með uppáhaldspersónunum.

Þátttaka ókeypis, öll velkomin.

Viðburðurinn hlaut verkefnastyrk frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu vegna barna á flótta á leikskóla- og framhaldsskólaaldri.

Viðburður á Facebook

Nánari upplýsingar veitir: 
Jessica Chambers, contact@prinsessur.is
prinsessur.is

Merki