
Um þennan viðburð
Hendur Íslands | Óskað eftir rithöfundum og skáldum
Að lesa í karakter þjóðar í gegnum hendur og lófa
Hvað segja hendurnar þínar um þig? Á fimmtu hæð í Borgarbókasafninu Grófinni verður hægt að taka þátt í áhugaverðri rannsókn sem kallast Hendur Íslands, en rannsóknin miðar að því að skoða hvernig hendur og lófar Íslendinga hafa þróast í gegnum breytta lifnaðarhætti, allt aftur til 17.aldar
Listakonan og lófalesarinn Jana Napoli er forsprakki verkefnisins en hugmyndin kviknaði þegar Jana heimsótti Ísland árið 2016 og komst að því að Íslendingar eru hlutfallslega fleiri örvhentir en gengur og gerist. Síðan þá hefur hún komið árlega til landsins til að halda rannsóknum sínum áfram.
Óskar eftir rithöfundum og skáldum
Jana hefur tekið ljósmyndir af höndum og lesið úr lófum um allt Ísland þannig safnað saman líffræðilegum og ljóðrænum upplýsingum um íslendinga úr öllum stéttum. Hún hefur skrásett um það bil 1% af lófum þjóðarinnar en leitar nú, á lokaspretti verkefnisins, að rithöfundum og skáldum til að taka þátt.
Þátttaka felur í sér ljósmyndun af höndum einstaklinga sem eiga að minnsta kosti eitt íslenskt foreldri, og að því loknu býður Jana upp á persónulega lófa- og handlestur fyrir þau sem vilja. Naglalakk og gervineglur þurfa að vera fjarlægð fyrir myndatöku.
Ert þú rithöfundur eða skáld? Bókaðu tíma hér
Föstudaginn 30. maí
Laugardaginn 31. maí
Sunnudaginn 1. júní
Staðsetning: Borgarbókasafnið Grófinni, 5. hæð – Tryggvagata 15, 101 Reykjavík
Nánar um Hendur Íslands
Hendur Íslands er verkefni Jönu Napoli, samfélagsfrumkvöðuls frá New Orleans, en Þjóðskjalasafn Íslands mun geyma gögnin þegar verkefninu lýkur, þ.e. safn ljósmynda af höndum Íslendinga, án persónuupplýsinga.
Þau gætu komið þér á óvart viskukornin sem koma í ljós við lófa- og handalesturinn, en Jana gefur sig þó alls ekki út fyrir að vera spákona. Hún les persónueinkenni úr lófum hvers og eins, með hliðsjón af því hvernig þeir eru uppbyggðir og hvaða línur og tákn þeir geyma. Jana hefur fengist við lófalestur sér til gagns og ánægju í 65 ár.
Jana hefur fengist við ýmislegt um víða veröld. Verkefni hennar á lista- og samfélagssviðinu hafa vakið verðskuldaða athygli og hefur hún meðal annars hlotið „Use your life“ viðurkenningu frá spjallþáttadrottningunni Oprah Winfrey. Viðurkenningin var fyrir verkefni sem kallast YA/YA Inc. og gengur út á að gefa ungmennum í félagslega erfiðum aðstæðum valdeflandi verkfæri í gegnum listsköpun. Þá gerði Jana stóra og víðförla innsetningu undir heitinu Floodwall eftir að fellibylurinn Katarina olli gríðarlegum skemmdum og mannfalli í heimaborg hennar.
Nánari upplýsingar veita:
Barbara Guðnadóttir
Deildarstjóri Borgarbókasafninu Grófinni
barbara.gudnadottir@reykjavik.is
Jana Napoli
Hands of Iceland Facebook
.