
Um þennan viðburð
Sumarsmiðja | Lagasmiðja með Andrési
Á lagasmíðanámskeiðinu er markmiðið að búa til eitt lag!
Við ætlum að byrja frá hugmynd og læra að stækka hana og gera að fullgerðu lagi.
Þetta er frábært tækifæri fyrir öll þau sem hafa áhuga á að semja lag og langar að fá tækifæri til þess að vinna í skemmtilegu og hvetjandi umhverfi.
Notast verður við hljóðforritin Ableton Live og Logic.
Andrés Þór Þorvarðarson er tónlistarmaður og kennari fæddur árið 1996.
Hann kláraði tónsmíðar frá Listaháskóla Íslands árið 2019 og er núna í MA í Listkennslufræðum í Listaháskóla Íslands. Hann hefur mikla reynslu af lagasmíðum og hefur verið í hljómsveitum á borð við Milkhouse, We are not romantic, Skoffín og spilað inná lög með K.óla og Önnulísu. Þá hefur hann samið tónlist fyrir leiksýningarnar Pabbastrákar og Hvað ef sósan klikkar.
Aldur: Börn fædd 2009, 2010, 2011 og 2012
Tími: Smiðjan stendur yfir í þrjá daga 11. – 13. júní kl.13:00 – 16:00
Skráning hefst 29. apríl kl. 13 á sumar.vala.is
Hér má sjá lista yfir allar sumarsmiðjur Borgarbókasafnsins.
Nánari upplýsingar:
Karl James Pestka, verkefnastjóri skapandi tækni
karl.james.pestka@reykjavik.is