
Um þennan viðburð
Prinsessusögur og föndur
Garðabrúða, Fríða og Hafmeyjuprinsessan bjóða upp á töfrandi sögustund á ensku, spænsku og úkraínsku. Að lokinni sögustund gefst tækifæri til þess að leyfa sköpunarkraftinum að njóta sín í skemmtilegri smiðju þar sem börnin búa til prinsessukórónu sem þau fá að taka með sér heim!
Á milli sögustunda verður söngur og dans og því er gott að vera tilbúinn að hreyfa sig og dansa með uppáhaldspersónunum.
Þátttaka ókeypis, öll velkomin.
Viðburðurinn hlaut verkefnastyrk frá Mennta- og barnamálaráðuneytinu vegna barna á flótta á leikskóla- og framhaldsskólaaldri.
Nánari upplýsingar veitir:
Jessica Chambers, contact@prinsessur.is
prinsessur.is