green screen video editing final cut pro
green screen video editing final cut pro

Um þennan viðburð

Tími
16:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Aldur
13+
Tungumál
Íslenska og enska
Skapandi tækni
Tónlist
Ungmenni

FRESTAÐ Smásmiðja | Að taka upp með grænskjá í Final Cut Pro 

Mánudagur 31. mars 2025

Vinsamlegast athugið að þessum viðburði verður frestað til 28. apríl n.k.

Lærum að nota grænskjá með Final Cut Pro!

Að nota grænskjá er mjög áhrifarík og skemmtileg tækni í myndbandagerð. Í þessari Smásmiðju lærum við að nota grænskjáinn (green screen) á Verkstæðinu í Grófinni með hjálp myndvinnsluforritsins Final Cut Pro. Þátttakendur taka upp einfalt myndband með grænum bakgrunn og skipta svo græna litnum út fyrir í bakgrunn að eigin vali! Eftir vinnustofuna gefst tími til að vinna að eigin verkefni með aðstoð frá starfsfólkinu á staðnum. 

Á Verkstæðinu er ókeypis aðgengi að grænskjá, Final Cut Pro forritinu og mörgum fleiri skapandi forritum. Komdu í Smásmiðjuna eða bókaðu grænskjáatölvu og lærðu upp á eigin spýtur

smásmiðjur í skapandi tækni – annan hvern mánudag hjá Borgarbókasafninu Grófinni

Smásmiðjur | Opnir aðstoðartímar á Verkstæðinu Grófinni

Í Smásmiðjunum lærum við allt milli himins og jarðar sem tengist skapandi tækni og tölvuvinnslu. Á Verkstæðinu eru fullbúnar tölvur með öllum helstu forritum fyrir myndvinnslu, tónlistarsköpun eða hljóðvinnslu og tilvalið að mæta í Smásmiðjurnar fyrir þau sem langar að læra á forritin og nýta sér búnaðinn.

Við kynnumst einhverju nýju í Smásmiðjunum annan hvern mánudag frá kl. 16:30–17:30. Eftir tímann verður starfsfólk til staðar til að aðstoða með hvað sem er til kl. 18:00.

Engin skráning, bara mæta!

Viðburður á facebook

Nánari upplýsingar veitir:

Valgeir Gestsson, sérfræðingur Tónlistardeildar
valgeir.gestsson@reykjavik.is | 411 6100