Íslenskunámskeið fyrir 12-16 ára | Mín saga
Á námskeiðinu verður kennd íslenska í gegnum skapandi skrif. Þemað í þessu námskeiði er veislur, ferðalög, vinátta, tíska og óvæntir atburðir. Þátttakendur lesa örsögur í tíma og ræða efni þeirra. Síðan verður nemendum leiðbeint við ritun einfalds texta á íslensku. Þeir sem vilja geta deilt textum sínum í lok hvers námskeiðs og þegar allar fjórar lotur eru búnar verður upplestrarviðburður.
Námskeiðið er ætlað krökkum á aldrinum 12-16 ára sem langar til þess að bæta orðaforða sinn, leika sér með tungumálið og þjálfa sig í skapandi skrifum. Skemmtilegur og spennandi orðaforði verður lagður inn, unnið með efni líðandi stundar og orðasambönd og nýyrðasmíð.
Hámarks fjöldi á hverju námskeiði: 12 þátttakendur.
Þátttaka er ókeypis en skráning nauðsynleg. Hægt er að sækja eina eða fleiri lotur þar sem hver lota er kennd sem sjálfstæð eining. Í valmynd má sjá yfirlit yfir þær fjórar lotur sem í boði eru.
Smellið á hlekkina til að skrá ykkur.
Berglind Erna Tryggvadóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir leiða námskeiðið. Þær eru rithöfundar og íslenskukennarar, auk þess sem þær semja námsgögn í íslensku.
Nánari upplýsingar veita:
Berglind Erna Tryggvadóttir
berglinderna12@gmail.com
Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | 411 6115