Sögustundir á söfnunum
Sögustundir á söfnunum
Það er fátt notalegra en að mæta á sögustund með litlu krílin okkar. Við bjóðum upp á fjölbreyttar sögustundir í söfnunum okkar þar sem sögumaðurinn hverju sinni setur sinn svip á viðburðinn. Það hefur til dæmis skapast skemmtileg hefð í Sólheimum þar sem öll mæta á náttfötunum með uppáhalds tuskudýrið undir hendinni, enda er sú sögustund rétt fyrir háttatímann. Við lesum alls konar skemmtilegar sögur, syngjum og bregðum á leik, allt eftir því hvað okkar skemmtilegu sögumenn láta sér detta í hug.
Sögustundirnar eru á ýmsum tungumálum og öll börn eru hjartanlega velkomin og þau mega gjarnan bjóða vinum sínum, foreldrum, ömmum og öfum með sér.
Fylgjast má með dagskrá sögustunda hér á síðunni eða á Facebook síðunni okkar, allt eftir því sem ykkur hentar best.
Sögustundir á netinu
Ef þið eigið ekki heimangengt er lítið mál að velja sögustund hér á síðunni okkar en við höfum tekið upp margar sögustundir á síðustu misserum sem eru alltaf aðgengilegar.
Kynnið ykkur úrval sögustunda hér á síðunni okkar.
Nánari upplýsingar um sögustundirnar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411 6100