Um þennan viðburð

Tími
11:30 - 13:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
-
Tungumál

Skoðum og spjöllum | Sjóminjasafn

Laugardagur 27. september 2025

Komdu og æfðu þig að tala íslensku í notalegu og afslöppuðu umhverfi og hittu fleiri sem eru líka að læra. Öll velkomin - líka byrjendur! 

Þátttaka er ókeypis og engin skráning, bara mæta!

Langar þig að rölta um miðborg Reykjavíkur og skoða skemmtilegar sýningar á fjölbreyttum menningarstofnunum á meðan þú æfir þig að spjalla á íslensku? Við hittumst einu sinni í mánuði og kynnumst borginni betur. Leiðsagnirnar fara fram á íslensku en reyndir íslenskukennarar fylgja hópnum og aðstoðar ef á þarf að halda. 

Við hittumst á Torginu, 1.hæðinni á Borgarbókasafninu Grófinni (miðbær), fáum okkur kaffi/te og förum yfir orð sem nýtast munu vel í safnaheimsókn dagsins, áður en við röltum saman af stað í smá vettvangsferð og kynnumst borginni betur. Í dag heimsækjum við Sjóminjasafn.

Skoðum og spjöllum er hluti af viðburðaröðinni Spjöllum með hreim (Let's chat with an accent), þar sem boðið er upp á fjórar skemmtilegar og ólíkar leiðir til að æfa sig að tala íslensku undir handleiðslu reyndra kennara.

Hér getur þú lesið meira um Spjöllum með hreim og séð alla dagskrána. 

Viðburður á Facebook
 

Fyrir nánari upplýsingar: 
Hildur Björgvinsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is