Janosch Kratz kynnir Stofuna

Um þennan viðburð

Tími
17:00 - 18:00
Verð
Frítt
Spjall og umræður

Janosch opnar Stofuna | A Public Living Room

Þriðjudagur 28. september 2021

Janosch Bela Kratz hefur fyrsta samtalið í sinni eigin útgáfu af Stofunni | A Public Living Room.  

Í þessari fyrstu útgáfu Stofunnar langar mig að halda áfram með rannsóknir mínar á erlendum samfélögum á Íslandi, menningararfleifð þeirra og mikilvægi. Ég mun flétta inn þáttum úr útskriftarverkefni mínu úr meistaranámi í hönnun við LHÍ, til að glæða samtalið lífi. Við skoðum sérstaklega Facebook-hópinn Away from home - living in Iceland, sem er lokaður hópur með meira en 21.000 meðlimum  sem hafa mismunandi bakgrunn. Efnistök hópsins eru vandasöm þegar kemur að stjórnmálaskoðunum, samskiptum um kynþátta- og þjóðernishyggju, en stendur eftir sem áður sem mikilvægt skjalasafn þekkingar um næstum allt sem mögulega myndi blasa við útlendingi á Íslandi. 

Spennandi og ógnvænlegur staður, en mikilvægt að stofna til samtals. Með samræðunum reyni ég að draga þetta samfélag fram í raunheima. Og spyrja spurninga eins og: Hvers vegna finnst fólki það þurfa að ræða efni eins og kynþáttahyggju í þessum hópi? Hvert er markmið þeirra? Hvað vill fólk frá hópnum og hvað er raunhæft að telja hópinn geta gefið? Er stýringin nægileg? Og er yfirhöfuð raunhæft að ætla að hafa stjórn á svo stórum hópi þar sem innleggin skipta hundruðum í viku hverri? 

Allir sem hafa áhuga á þessum umræðum eru velkomnir að taka þátt. 

Stofa Janosch er staðsett á annarri hæði í Grófinni. 

Einu sinni í mánuði er Stofan | A Public Living Room opnuð af samstarfsaðila sem hefur hannað rýmið eftir sínu höfði.  Opnun stofunnar hefst með samtali við aðila að eigin ósk.  Í hvert skipti sem stofan er opnuð er upphafssamtalið tekið upp og notað í hlaðvarp, sem  gerir samskiptin í stofunni aðgengilegri fleiri notendum. 

Viðburðurinn á Facebook. 

Frekari upplýsingar um verkefnið: 
Dögg Sigmarsdóttir | Verkefnastjórnun borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is