Anime klúbbur Grófinni Borgarbókasafnið

Um þennan viðburð

Tími
15:30 - 17:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
10-12 ára
Tungumál
Íslenska English
Börn

Klúbbur | Anime fyrir 10-12 ára

Fimmtudagur 11. september 2025

Klúbburinn er ætlaður krökkum á aldrinum 10-12 ára sem hafa brennandi áhuga á Anime.

Í klúbbnum gerum við margt skemmtilegt eins og að gera merki, teikna, föndra, spila og spjalla um anime svo eitthvað sé nefnt. Svo verða að sjálfsögðu skipulagðar bíósýningar, alls kyns smiðjur og bara hvað sem klúbbmeðlimum dettur í hug að gera!
Leiðbeinendur klúbbsins eru starfsmenn Borgarbókasafnsins og við leggjum okkur sérstaklega fram að taka vel á móti öllum og okkar mottó er að það sé hvergi pláss fyrir fordóma.

Það er auðvitað ekkert þátttökugjald, skráning er nauðsynleg.

Opnað verður fyrir skráningu 18. ágúst á sumar.vala.is

Við hittumst einu sinni í mánuði; 11 september, 9. október, 6. nóvember og 4. desember kl. 15.30-17.00 í Grófinni (á 5. hæð)

Nánari upplýsingar:
Hólmfríður Ólafsdóttir
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is

Merki