
Uppfinningastelpan Lukka ætlar að nýta tímann í sumarfríinu í að koma hugmyndavélinni sinni í gang. Fyrirætlanir hennar fara þó út um þúfur þegar hún og bróðir hennar flækjast í dularfullt mál sem hefur komið upp í bænum Smáadal. Stórskemmtilegt og ríkulega myndskreytt ævintýri! (Heimild: Bókatíðindi)