Lifandi og áhrifarík frásögn af hinum umdeilda Bobby Fischer, allt frá barnæskunni í Brooklyn til banalegunnar á Íslandi. Í bókinni kynnumst við loks manninum á bak við þann Bobby sem hingað til verið hefur heiminum ráðgáta. Hér fáum við í fyrsta sinn raunsanna mynd af tifinningum hans og nánu sambandi við móður sína þar sem arfur gyðinga birtist í óvæntu ljósi. Einnig kynnumst við því hvernig kaþólsk viðhorf efldu með honum afstöðu sem átti ríkan þátt í því hvernig hann mætti örlögum sínum. (Heimild: Bókatíðindi)