
Kolkex, Hermann Súkker og Flugan eru ósköp venjulegar húsflugur sem fáir taka eftir og gera sjaldnast neitt merkilegt. Þar til daginn sem rafmagnsflugnaspaðinn kemur inn á heimilið og þær ákveða að flýja. Þetta er óvenjuleg saga, bráðfyndin og alvarleg í senn, um flugur, fólk og stríð, sem valin var úr fjölda handrita sem kepptu um Íslensku barnabókaverðlaunin 2011. (Heimild: Bókatíðindi)