• Bók

Rökkurbýsnir

Sjón (2008)
Árið 1635 er jörðin enn í miðju alheimsins, hólf hjartans eru tvö, fuglar klekjast úr þangi, einhyrningshorn eru eftirsótt munaðarvara og steinar þykja góðir til lækninga. Rithöfundurinn og myndasmiðurinn Jónas lærði Pálmason er dæmdur fyrir útbreiðslu galdra og sendur í útlegð í Gullbjarnarey. Skáldsagan Rökkurbýsnir byggist á lífi og hugarheimi þessa sjálfmenntaða Íslendings sem kalla má holdgerving sautjándu aldarinnar. Sjón hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín sem hafa komið út víðsvegar um heim og vakið mikla athygli. Árið 2005 hlaut hann Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir skáldsöguna Skugga-Baldur. (Heimild: Bókatíðindi)
Gefa einkunn