
Loksins er komin önnur bók eftir höfund Flugdrekahlauparans. Hér segir Hosseini frá tveimur afgönskum konum, Mariam og Lailu, sem lifa mjög ólíku lífi á róstusömum tímum í Kabúl þar sem átök milli stríðandi herja og valdataka talibana kemur illa niður á óbreyttum borgurum. Örlögin leiða konurnar tvær saman og þær þróa með sér vináttusamband sem hefur afdrifaríkar afleiðingar fyrir þær báðar. Þrátt fyrir að bókin fjalli um ömurlegt hlutskipti afganskra kvenna er hún fyrst og fremst hylling mannsandans, óður til kærleikans sem gerir mönnunum kleift að sigrast á erfiðleikum og ómanneskjulegri grimmd. Bókin er einnig gefin út sem hljóðbók. (Heimild: Bókatíðindi)
