
Sagan, sem nú kemur út í kilju, fjallar um Jean-Baptiste Grenouille sem fæðist undir blóðugu fisksöluborði í París. Nöturleg koma hans í heiminn er þó aðeins upphafið að furðulegu lífshlaupi þesa grimma og einstæða snillings sem er gæddur yfirskilvitlegu lyktarskyni en ber enga líkamslykt sjálfur. Bók sem hefur farið sigurför um heiminn. (Heimild: Bókatíðindi)

