Næring og hollusta er ómissandi bók fyrir allt áhugafólk um heilbrigða lífshætti. Í henni er að finna ýmsan hagnýtan fróðleik um fæðutegundir og mataræði. Meðal annars er fjallað um helstu næringarefni, hlutverk þeirra og ráðlagða dagsskammta. Þá er fjallað um næringarþarfir sérstakra hópa, svo sem barnshafandi kvenna, ungbarna og aldraðra. Í þessari nýju og endurskoðuðu útgáfu á bókinni er að finna upplýsingar sem byggðar eru á nýjustu rannsóknum og áherslum næringarfræðinga. (Heimild: Bókatíðindi)