Allur texti Eddu í handhægri útgáfu: Prologus, Gylfaginning, Skáldskaparmál, Háttatal og nafnaþulur. Inngangsorð að hverjum hluta ásamt ítarlegum orða- og vísnaskýringum leiða nýja lesendur um heillandi heim Eddu. Nafnaskrá og skrá yfir kenningar og heiti eru fengur fyrir alla áhugamenn um norræna goðafræði og fornan kveðskap. (Heimild: Bókatíðindi)


