
Sunna er að ljúka vorprófum í 10. bekk. Framundan er áhyggjulaust sumar og hin frjálsu menntaskólaár. Þá hittir hún Bigga, sætasta strákinn í bekknum. Um nóttina eru þau saman heima hjá Sunnu. Þegar líður á haustið fær Sunna grun sinn staðfestan, nóttin hefur dregið dilk á eftir sér. Hér er því lýst á nærfærinn og raunsæjan hátt hvernig það er fyrir sextán ára stelpu að verða ólétt og eignast barn. Ragnheiður hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 2000 fyrir bókina Leikur á borði en hefur einnig samið og myndskreytt fjölda bóka. (Heimild: Bókatíðindi)

