Lýsum upp skammdegið með endurunnum luktum!
Komið og búið til skrautlegar luktir úr glerkrukkum á Kakó Lingua! Við verðum með skreytingaefni á staðnum til að breyta venjulegum glerkrukkum í fallegar luktir, en ekki gleyma að koma með glerkrukkur að heiman! Við tölum íslensku, ensku, frönsku, pólsku, spænsku en finnum leiðir til að eiga samskipti og hafa gaman á öllum tungumálum.
Þátttaka er ókeypis og skreytingaefnið verður allt á staðnum!
Á Kakó Lingua viðburðum er lögð áhersla á fjölmenningarlegar samverustundir þvert á kynslóðir. Með því að nota sjónræna samsköpun og mismunandi tungumál í vinalegu og hvetjandi umhverfi, nýtum við færni hvers annars og tengjumst með því að hafa samskipti umfram tungumálið. Viðburðirnir fara fram á Borgarbókasafninu Kringlunni, þátttaka er ókeypis og allt efni á staðnum. Síðast, en ekki alls ekki síst, það er alltaf heitt kakó á boðstólnum og notaleg tónlist á fóninum.
Viðburðurinn á Facebook
Frekari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel, sérfræðingur fjölmenningarmála
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is