Smiðja | Skreytum viskutjaldið
Föndursmiðja fyrir (litlar) nornir sem eru til í að aðstoða okkur að byggja og skreyta tjaldið. Camilla og Lísa eru að gera tjald á bókasafninu. Til að gera tjaldið huggulegt og kósý viljum við bjóða ykkur að koma og föndra með okkur ljós, verndargripi, skraut og fleira sem við setjum upp í tjaldinu okkar. Í von um að öllum líði vel í tjaldinu.
Sjáumst!
Camila og Elisabeth
(Íbúar á bókasafninu í apríl og maí 2023)
Gerðuberg kallar hófst árið 2021 með ákalli til skapandi einstaklinga um að vinna verkefni með safninu. Að leiðarljósi voru tvö þemu: að tilheyra og örugg rými fyrir alla. Í stuttu máli heppnuðust bæði verkefnin vel og skildu eftir sig reynslu og tengsl sem fylgja okkur áfram. Því viljum við halda áfram með skapandi samstarf og að þessu sinni er þemað: tengsl - það sem sameinar okkur.
Further Information
Martyna Karolina Daniel, Intercultural Specialist
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is