
Um þennan viðburð
Siljan - myndbandsgerð | 10-16 ára
Við bjóðum upp á skemmtilegt námskeið í stiklugerð í tengslum við Siljuna, árlega myndbandasamkeppni fyrir 5. – 10. bekk. Þátttakendur búa til stutt myndband um barna- eða unglingabók sem hefur komið út á síðustu tveimur árum.
Unnið verður saman í litlum hópum og velur hópurinn saman bók sem hann langar að fjalla um.
Myndbandakeppnin Siljan er samstarfsverkefni Barnabókaseturs Íslands og Borgarbókasafnsins og er hún haldin á hverju ári. Keppt er í tveimur flokkum, 5.-7. bekk og 8.-10. bekk. Siljan er opin nemendum í öllum skólum landsins og eru vegleg verðlaun í boði fyrir sigurmyndbandið í hverjum aldursflokki.
Anna Sæunn Ólafsdóttir, leiðbeinandi námskeiðsins er menntuð leik- og kvikmyndagerðarkona. Hún hefur komið að framleiðslu og leikstjórn fjölda stutt- og heimildamynda og rekur sitt eigið framleiðslufyrirtæki í dag. Hún viðamikla reynslu og brennandi áhuga á vinnu með börnum og unglingum.
Skráning er hafin, sjá skráningarform hér fyrir neðan.
Dagskrá:
laugardaginn 12. mars kl. 13-15 - handritagerð
Milli námskeiða: Hópar taka upp myndefni fyrir stikluna
laugardaginn 26. mars 13-15 - Myndbandsvinnsla. Hópar fá kennslu á myndvinnsluforrit og vinna stikluna sína.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146