
Um þennan viðburð
Sumarsmiðja | Ævintýratextíll
Krakkar, eruð þið til í að breyta gömlum fötum í flotta tösku eða stökum sokkum í ógnvekjandi (eða krúttlegt) skrímsli?
Í þessari smiðju ætlum við að opna risastóra dularfulla kistu, fulla af litskrúðugum efnisafgöngum, glitrandi tölum, gömlum fötum og öðru skemmtilegu dóti. Við erum ekki bara að föndra, við erum að galdra nýtt líf í hlutina.
Hvað ætlum við að gera?
Búa til okkar eigin vini: Sauma eða líma saman skrímsli, dýr eða jafnvel ofurhetjur úr sokkum og gömlum fötum.
Hanna flott dót: Búa til nýtt úr gömlu, hálsmen eða skreyta töskur þar sem við notum textíl í staðinn fyrir málningu.
Leika okkur með liti: Tæta, hnýta og flétta saman efnisbúta til að búa til litrík listaverk.
Vera umhverfishetjur: Læra hvernig við getum minnkað rusl og bjargað jörðinni með því að nota það sem við eigum til.
Þetta verður fullt af fjöri, hlátri og villtri sköpunargleði. Þú þarft ekkert að kunna að sauma við hjálpum þér að finna bestu leiðina til að láta þína hugmynd verða að veruleika.
Allt efni er á staðnum, en ef þú átt einhverja gamla flík heima sem má nota í galdrana okkar, þá máttu endilega taka hana með!
Komdu og sýndu okkur hvað þú getur skapað!
Aldur: Börn fædd 2014, 2015 og 2016.
Tími: Smiðjan stendur yfir í tvo daga, 25.-26. júní kl. 10:00-12:00.
Dagsetning skráningar verður auglýst síðar.
Borgarbókasafnið er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist Make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumer) þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir t.d. við að gera við textíl, og kynnumst allskyns handverki og aðferðum. Þetta er ferðalag og áfangastaðurinn mótast með þátttöku sem flestra. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Agnes Jónsdóttir, sérfræðingur
agnes.jonsdottir@reykjavik.is | 411 6250
Hrafnhildur Gísladóttir og Hildigunnur Sigurðardóttir
Textíl Barinn | textilbarinn@gmail.com