
Um þennan viðburð
Sýning | Íslensk hús
Sýning nemenda í 10. bekk í Norðlingaskóla.
Nemendurnir hafa í vetur valið sér íslenskt hús sem þeim finnst falleg og áhugaverð, aflað sér upplýsinga um þau og útfærðu þau sem lítil leirverk. Einstaka nemendur hafa valið að glerja húsin sem þeir völdu.
Húsin eru kirkjur, vitar, flugstöðvar, ásamt öðrum merkum húsum s.s. Alþingishúsið og Arnarstapi.
Nemendur á yngsta stigi læra nú um land og þjóð í smiðju og beinum við sjónar okkar að þróun húsa. Við skoðum bók Ölmu Sigurðardóttur, Byggingarnar okkar, þar sem við sjáum hvernig hús hafa þróast frá torfkofum, í steinhús, timburhús og loks steinsteypt hús. Í þeirri vinnu draga nemendur eitt af húsunum sem 10. bekkur valdi og gera teikningu af sama húsi. Þeir fá bæði ljósmynd og leirútgáfuna til að herma eftir.
Sýninguna skreyta einnig blóm sem nemendur af yngsta og miðstigi teiknuðu. Nemendur teiknuðu blóm Norðlingaskóla, túnfífil, en einnig holta- og brennisóleyjar. Blómin minna okkur á að bráðum kemur vorið.
Það koma því um 150 nemendur af öllum stigum skólans að sýningunni. En það eru um 550 nemendur í Norðlingaskóla.
Sýningin er hluti af Barnamenningarhátíð
Nánari upplýsingar
Katrín Guðmunsdóttir
Katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is