
Um þennan viðburð
Fræðakaffi | Nítjándu aldar piparmeyjar og ævisaga fröken Thoru Friðriksson
Sigríður Kristín Steingrímsdóttir heldur fyrirlestur í tengslum við bók sína Piparmeyjar: Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi.
Algengt var að yngstu dætur fyrr á tíð sætu kyrrar heima að hugsa um heimilið og aldraða foreldra sína og jafnvel aðra ættingja, eða tækju að sér börn, en væru sjálfar einhleypar og barnlausar. Þetta munstur var algengt hér á landi og þótt víðar væri leitað. Thora Friðriksson var ein þessara stúlkna, fædd 1866 í Reykjavík, dóttir þekkts embættismanns. Hún var glæsileg stúlka og vel ættuð, svo hvers vegna giftist hún ekki? Var það eingöngu vegna þess að hún var bundin heima fyrir og fékk varla að hreyfa sig úr húsi?
Í bókinni Piparmeyjar er þessari og fleiri spurningum velt upp þegar skoðaður er tvö hundruð kvenna hópur, allar fæddar á nítjándu öld og allar einhleypar og barnlausar. Meðfram vangaveltum um hlutskipti einhleypu kvennanna og hver hlutur þeirra er í kvennasögunni, er ævisaga fröken Thoru rakin, byggð að miklu leyti á sendibréfum hennar til eldri systur hennar sem var búsett á Vestfjörðum.
Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir er sagnfræðingur og menntaður kennari. Hún starfaði árum saman við kennslu, en fékkst einnig við blaðamennsku og sitt lítið af hverju. Lengst af starfaði hún þó sem sérfræðingur á Byggðastofnun, allt þar til hún hætti störfum í árslok 2024. Meðfram sérfræðistörfunum skrifaði hún bækur sem voru gefnar út af Máli og menningu, en var samt enginn nýgræðingur á ritvellinum því eftir hana liggja ýmis rit eða hluti úr riti, auk fjölda blaða- og tímaritsgreina. Nú sinnir hún ritstörfum í fullu starfi meðfram því að vera eftirlaunaþegi.
Viðburðurinn á Facebook
Nánari upplýsingar veita:
Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir, sagnfræðingur
siggastinath@gmail.com |
Halldór Óli Gunnarsson, sérfræðingur
halldor.oli.gunnarsson@reykjavik.is | 411 6241