
Um þennan viðburð
Kynning á bókum sem tilnefndar eru til Viðurkenningar Hagþenkis 2026
Bókakynning – tilnefndir höfundar til Viðurkenningar Hagþenkis kynna ritin í Borgarbókasafninu í Grófinni laugardaginn 14.febrúar kl. 13-15.
Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna hefur frá 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. Viðurkenningarráð Hagþenkis, félagsmenn af mismunandi fræðasviðum, tilnefna 10 rit og höfunda þeirra. Viðurkenning Hagþenkis verður veitt um miðjan mars í Þjóðarbókhlöðunni.
Dagskrá:
13:00-13.10
Andri Þorvarðarson. Fjölbraut í 50 ár. Saga Fjölbrautaskólans í Breiðholti 1975–2025. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti.
Áhugaverð og lipurlega skrifuð saga fyrsta fjölbrautaskólans á Íslandi, sem jafnframt endurspeglar margvíslegar breytingar sem orðið hafa í samfélaginu síðastliðna hálfa öld.
13:10-13:20
Davíð Ólafsson og † Arndís S. Árnadóttir. Mynd & hand. Skólasaga 1939–1999. Sögufélag.
Hin merka saga Myndlista- og handíðaskóla Íslands er rakin frá stofnun skólans þar til hann varð hluti af Listaháskóla Íslands. Grundvallarrit í sögu skóla og myndmennta.
13:20 -13:30
Einar Falur Ingólfsson. Kristján H. Magnússon. Listamaðurinn sem gleymdist. Veröld.
Vandað og glæsilegt verk um myndlistarmann sem hefur fengið takmarkaða athygli. Bókin er byggð á víðtækri rannsókn um verk Kristjáns og æviferil.
13: 30-13:40
Garðar Gíslason og Blær Guðmundsdóttir. Ég og umheimurinn. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Þriðja hefti vandaðs kennsluefnis í samfélagsgreinum fyrir miðstig grunnskóla ásamt góðum kennsluleiðbeiningum á vef. Lipur texti í ríkulega myndskreyttri bók.
13:40-13:50
Kristín Svava Tómasdóttir. Fröken Dúlla. Ævisaga. Benedikt.
Vönduð og afar læsileg ævisaga Jóhönnu Knudsen, hugsjóna- og hjúkrunarkonu, sem starfaði meðal annars fyrir umdeilt ungmennaeftirlit á tíma ástandsins svokallaða.
13:50-14:00
Sigfús Jónsson og Sveinn Agnarsson. Sjávarútvegur Íslendinga 1975–2025. Fyrra bindi: Starfsumhverfi og stjórnsýsla. Hið íslenska bókmenntafélag.
Greinargott og upplýsandi yfirlit laga og reglna um undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar. Fjallað er meðal annars um kvótakerfið, vinnumarkað, hafrétt og smábátaútgerð.
Hlé
14:10 – 14:20
Sigurjón Árni Eyjólfsson. Abstraktmálverkið. Helgimynd íslenskrar menningar á 20. öld? Hið íslenska bókmenntafélag.
Frumleg listfræðileg nálgun um tengsl abstraktlistar við framfaratrú og veraldarhyggju með hliðsjón af hugmyndafræðilegum átökum í víðara samhengi samfélags og trúar.
14:20-14:30
Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir. Meyjar og völd. Rímur og saga af Mábil sterku. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Athyglisverð umfjöllun um einstakar rímur sem hafa aldrei áður komið út á prenti. Saga þeirra er rakin í víðu samhengi, greint frá handritum og bent á mögulegan höfund.
14: 30-14:40
Daníel Bergmann. Fuglar og fuglastaðir. Árbók Ferðafélags Íslands 2025. Ferðafélag Íslands.
Frumleg nálgun þar sem fuglaskoðun á einstökum landsvæðum er kynnt og fjallað um fuglaljósmyndun, framlag áhugamanna og fleira. Einstakar ljósmyndir og vönduð kort.
14:40-14:50
Kjartan Atli Ísleifsson. Skrifarar sem skreyttu handrit sín. Alþýðulist og skreytingar í handritum síðari alda. Háskólaútgáfan.
Frumrannsókn sem varpar nýju ljósi á skreytingar í handritum alþýðuskrifara. Mikilvæg viðbót við rannsóknir á sviði íslenskrar handritamenningar
Dagskráin er á vegum Hagþenkis - félags höfunda fræðirita og kennslugagna.
Frekari upplýsingar veitir:
Friðbjörg Ingimarsdóttir
Framkvæmdastýra Hagþenkis
netpóstfang: hagthenkir@hagthenkir.is