Tilnefningar | Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2023

Fimmtán bækur voru í dag tilnefndar til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2023. Veitt eru verðlaun í þremur flokkum: fyrir frumsamdar og þýddar barnabækur sem og fyrir myndlýsingar.

Jafnframt var veitt sérstök viðurkenning Bókmenntaborgarinnar til þeirra sem hafa unnið mikilvægt starf í þágu lestrarmenningar barna:
Yrsa Þöll Gylfadóttir, Iðunn Arna og útgáfan Bókabeitan hlutu þessa sérstöku viðurkenningu fyrir bókaflokkin Bekkurinn minn.

Athöfnin fór fram á Borgarbókasafninu Grófinni í dag 12. apríl og við óskum öllum tilnefndum höfundum, þýðendum, myndlistarmönnum, hönnuðum og útgefendum hjartanlega til hamingju.

Hér gefur að líta hvaða bækur eru tilnefndar:

Tilnefnd frumsamin verk

Kollhnís eftir Arndísi Þórarinsdóttur
Útgefandi: Forlagið

Frankensleikir eftir Eirík Örn Norðdahl
Útgefandi: Mál og menning

Allt er svart í myrkrinu eftir Elísabetu Thoroddsen
Útgefandi: Bókabeitan

Ófreskjan í mýrinni eftir Sigrúnu Eldjárn
Útgefandi: Mál og menning

Héragerði: Ævintýri um súkkulaði & kátínu eftir Lóu H. Hjálmtýsdóttur
Útgefandi: Salka
 

Verk tilnefnd fyrir myndlýsingar

Héragerði: Ævintýri um súkkulaði & kátínu eftir Lóa H. Hjálmtýsdóttur 
Útgefandi: Salka

Eldgos eftir Rán Flygenring
Útgefandi: Angústúra

Leitin að Lúru eftir Margréti Tryggvadóttur og myndlýsing eftir Önnu C. Leplar
Útgefandi: Mál og menning

Mamma kaka eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur
Útgefandi: Salka

Frankensleikir eftir Eirík Örn Norðdahl og myndlýsing eftir Elías Rúna
Útgefandi: Mál og menning

 

Tilnefndar þýðingar

Einu sinni var mörgæs eftir Magda Brol, þýðandi: Baldvin Ottó Guðjónsson
Útgefandi:  Kvistur bókaútgáfa

Uppskrift að klikkun: Hjartasósa, hafgúuheilar og gvakamóri við leiðindum eftir Dita Zipfel, þýðandi: Jón St. Kristjánsson
Útgefandi: Angústúra

Ósýnilegur gestur í múmíndal eftir Cecilia Davidsson og Filippa Widlund eftir sögu Tove Jansson, þýðandi Gerður Kristný
Útgefandi: Mál og menning

Brandur flytur út eftir Sven Nordqvis, þýðandi: Ásta Halldóra Ólafsdóttir 
Útgefandi: Kvistur bókaútgáfa

Maía og vinir hennar eftir Larysa Denysenko og Masha Foya, þýðandi: Magnea J. Matthíasdóttir
Útgefandi: Vaka-Helgafell

 

Í dómnefnd eru: Sunna Dís Jensdóttir, tilnefnd af Bókmenntaborginni (formaður), Ragnheiður Gestsdóttir, tilnefnd af FÍT og Arngrímur Vídalín, tilnefndur af RSÍ.

 

Flokkur
UppfærtFimmtudagur, 13. apríl, 2023 10:05