Stjörnu-Sævar

Um þennan viðburð

Tími
13:00 - 15:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
6-10 ára
Tungumál
íslenska
Börn

Miklihvellur | Vísindasmiðja með Stjörnu-Sævari

Sunnudagur 28. september 2025

Komdu og taktu þátt í spennandi vísindasmiðju með Sævari Helga Bragasyni, Stjörnu-Sævari.

Þú ert agnarsmá geimvera í risavöxnum alheimi, nógu klár til að geta fundið út hvernig alheimurinn okkar varð til. Í smiðjunni förum við í ferðalag um tíma og rúm og skoðum hvernig talið er að alheimurinn okkar hafi orðið til. Við reynum að skilja út í hvað alheimurinn er að þenjast, skoðum elsta ljósið í alheiminum og hittum í leiðinni Albert Einstein (ekki í alvöru samt!

Smiðjan byggist á bókinni Miklihvellur eftir Sævar Helga, sem kemur út í haust. 

Nánari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur.

Öll velkomin!

Viðburður á Facebook

Nánari upplýsingar veitir:
Agnes Jónsdóttir, sérfræðingur
agnes.jonsdottir@reykjavik.is | 411 6250