
Information about the event
Fríbúð | Skiptumst á öskudagsbúningum
Öskudagur nálgast og við erum að safna búningum í Fríbúðinni!
Öskudagurinn er handan við hornið og því er tilvalið að koma með gamla grímubúninga og skipta út fyrir „nýja“ í Fríbúðinni.
Í Fríbúðinni er fataslá þar sem hægt er að hengja upp gamla búninga. Það er velkomið að taka búning án þess að koma með annan í staðinn og eins má koma með búninga án þess að taka aðra af slánni.
Í Fríbúðinni í Gerðubergi eru allir hlutir ókeypis. Þangað getur þú komið þegar þig vantar eitthvað eða þegar þú vilt gefa frá þér hluti sem þú þarft ekki lengur.
Kíktu á heildaryfirlit viðburða Borgarbókasafnsins eða á vef Reykjavíkurborgar þar sem einnig er aðgengilegt yfirlit yfir fjölbreytta dagskrá í vetrarfríinu.
Fríbúðin á Instagram: @fribudin_gerdubergi
Nánari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is | 411 6170