Um þennan viðburð

Tími
11:30 - 13:30
Verð
Frítt
Tungumál
Kennararnir tala ýmis tungumál
Tungumál

Lesum og spjöllum

Laugardagur 16. nóvember 2024

Komdu og æfðu þig að tala íslensku í notalegu og afslöppuðu umhverfi og hittu fleiri sem eru líka að læra. Öll velkomin - líka byrjendur! 

Þátttaka er ókeypis og engin skráning, bara mæta!

Lesum og spjöllum á íslensku er bókaklúbbur fyrir þau sem eru að læra tungumálið. Við lesum öll sömu bókina og hittumst einu sinni í mánuði á 5. hæð í Borgarbókasafninu Grófinni (miðborg) til að ræða hana, segja frá upplifun okkar af henni og spyrja kennarann spurninga. Bókaklúbburinn er hugsaður fyrir þau sem eru á stigi B1-B2 í íslensku. 

Við verðum einnig með fjölbreytt safn borðspila fyrir öll getustig, líka byrjendur, ef einhver vilja nota spil til að æfa sig að tala íslensku.

Lesum og spjöllum er hluti af viðburðaröðinni Spjöllum með hreim (Let's chat with an accent), þar sem boðið er upp á fjórar skemmtilegar og ólíkar leiðir til að æfa sig að tala íslensku undir handleiðslu reyndra kennara.
Hér getur þú lesið meira um Spjöllum með hreim og séð alla dagskrána. 

Viðburður á facebook

Fyrir nánari upplýsingar:
Martyna Karolina Daniel, sérfræðingur fjölmenningarmála
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is