Dægurflugur í hádeginu Marín Ósk, Kjartan Baldursson og Leifur Gunnarsson
Dægurflugur í hádeginu Marín Ósk, Kjartan Baldursson og Leifur Gunnarsson

Um þennan viðburð

Tími
13:15 - 14:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
Íslenska English
Tónlist

Dægurflugur í hádeginu I Spurt er um ástina!

Laugardagur 15. febrúar 2025

Borgarbókasafnið Gerðubergi
Föstudaginn 14. febrúar kl. 12:15-13:00

Borgarbókasafnið Spönginni
Laugardaginn 15. febrúar kl. 13:15-14:00

Marína Ósk tónlistarkona, Kjartan Baldursson gítarleikari og Leifur Gunnarsson flytja fjölbreytta tónlist til heiðurs heilags Valentínusar.

Spurt er hvað er ást? Er ástin eitthvað sem hægt er að setja í poka og bannað er að loka? Getur nokkur verið heppinn í bæði ástum og spilum? Er ástin eins og sinueldur eða segulstál?

Tríóið mun leika tónlist frá ýmsum skúmaskotum tónlistarsögunnar og reyna að varpa ljósi á spurningar um ástina sem brenna á tónleikagestum.

Nánar um Marínu Ósk: marinaoskmusic.com
Nánar um Leif: lgtonar.com

Frítt er inn á tónleikana og eru öll hjartanlega velkomin.

Dægurflugur í hádeginu er tónleikaröð sem Borgarbókasafnið stendur fyrir í samstarfi við Leif Gunnarsson kontrabassaleikara. Þar kemur fram margt af okkar helsta tónlistarfólki og á tónleikunum gefst Reykvíkingum tækifæri til að koma saman, hitta félaga, njóta tónlistar og spjalla við tónlistarfólkið eftir tónleika.
Markmiðið er fyrst og fremst að færa metnaðarfulla tónlist út í hverfi borgarinnar þannig að fólk geti notið hennar í eigin nærumhverfi og á eigin forsendum.

Listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar er Leifur Gunnarsson kontrabassaleikari.
Nánari upplýsingar veita:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is  I 868 1851

Leifur Gunnarsson
leifurgunnarsson@gmail.com | 868  9048