Bragi Árnason Dægurflugur í Hádeginu Borgarbókasafnið
Bragi Árnason Dægurflugur í Hádeginu Borgarbókasafnið

Um þennan viðburð

Tími
13:15 - 14:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
Íslenska English
Tónlist

Dægurflugur í hádeginu I Afmælistónleikar I Simon og Garfunkel

Laugardagur 19. október 2024

Dægurflugur í hádeginu I Simon and Garfunkel
10 ára afmæli hádegistónleika Borgarbókasafnsins

Borgarbókasafnið Gerðubergi föstudaginn 18. október kl. 12:15-13:00
Borgarbókasafnið Spönginni laugardaginn 19. október kl. 13:15-14:00


Á næstu tónleikum fögnum við tíu ára gjöfulu samstarfi við meistara Leif Gunnarsson.
Af því tilefni flytur Bragi Árnason nokkrar af helstu perlum söngvaskáldanna Paul Simon og Art Garfunkel. Þeir Paul og Simon aðhylltust svokallaða Folk-rock stefnu en frægðarstjarna þeirra félaga reis hæst um miðjan sjöunda áratuginn með lögum eins og Sound of Silence, Cecilia og The Boxer. 

Bragi Árnason, leikari og tónlistarmaður, hefur samið og sett á svið tvo söngleiki, leikið í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum, samið sönglög og margt fleira. Bragi er alltaf með mörg járn í eldinum s.b. gerð á nýrri teiknimyndaseríu, grínþáttum hjá Sjónvarpi Símans og splunkunýtt lag sem var að koma út á streymisveitum.

Með Braga koma fram Páll Sólmundur Eydal á gítar og söng og Leifur Gunnarsson á bassa.

Dægurflugur í hádeginu er tónleikaröð sem Borgarbókasafnið stendur fyrir í samstarfi við Leif Gunnarsson kontrabassaleikara. Þar kemur fram margt af okkar helsta tónlistarfólki og á tónleikunum gefst Reykvíkingum tækifæri til að koma saman, hitta félaga, njóta tónlistar og spjalla við tónlistarfólkið eftir tónleika.

Markmiðið er fyrst og fremst að færa metnaðarfulla tónlist út í hverfi borgarinnar þannig að fólk geti notið hennar í eigin nærumhverfi og á eigin forsendum.

Listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar er Leifur Gunnarsson kontrabassaleikari.
Nánar um Leif hér: www.lgtonar.com

Frítt er inn á tónleikana og eru öll hjartanlega velkomin.
Nánari upplýsingar veita:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is  I S: 8681851

Leifur Gunnarsson
leifurgunnarsson@gmail.com | S: 868 9048