Um þennan viðburð

Tími
Á opnunartíma
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Sýningar

Naglinn | Í Vatnafjöllum

Þriðjudagur 6. september 2022 - Mánudagur 31. október 2022

Málverkið Í Vatnafjöllum eftir Ásdísi Arnardóttur verður til sýnis á Naglanum á Borgarbókasafninu Sólheimum frá 6. september til  31. október. Verkið er fengið að láni úr Artótekinu, sem er til húsa í Borgarbókasafninu Grófinni.

Ásdís hefur í gegnum tíðina stundað fjölbreytt nám tengt myndlist, fyrst í Myndlistaskólanum á Akureyri og síðar í Myndlista- og handíðaskóla Íslands, Listaháskóla Íslands sem og í Accademia di Belle Arti í Bologna á Ítalíu. Náttúra og samfélag eru áberandi í verkum Ásdísar, en verk hennar eru aðallega með vatnslitum á pappír en einnig gerir hún teikningar og bókverk.
 

Naglinn er heitið á sýningaröð á Borgarbókasafninu Sólheimum. Í Vatnafjöllum er 11. sýningin í röðinni. Hver sýning samanstendur af einu listaverki. Áhugasamir geta keypt verkið eða leigt það á kaupleigu en þá eignast viðkomandi verkið þegar það hefur verið greitt upp. Sé sýningarverkið keypt (eða leigt) má kaupandinn velja úr Artótekinu hvaða verk verður næst til sýnis á Naglanum.

Hægt er að leigja verkið Í Vatnafjöllum á 2.000 kr. á mánuði eða kaupa það á 57.000 kr.

Nánari upplýsingar um Artótekið, listamanninn og verkið má finna hér á heimasíðu Artóteksins


Nánari upplýsingar veita:

Lísbet Perla Gestsdóttir
lisbet.perla.gestsdottir@reykjavik.is | s. 411 6160

Hólmfríður Gunnlaugsdóttir
holmfridur.gunnlaugsdottir@reykjavik.is | s. 411 6112