Um þennan viðburð

Tími
15:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
-
Sýningar
Tónlist

Innsetning | Huldar slóðir

Sunnudagur 25. janúar 2026 - Sunnudagur 8. febrúar 2026

Staðsetning: 2. hæð Hringurinn

Velkomin á opnunina  25.janúar kl. 15:00-17:00 


Innsetningin Hidden Trails (ísl. Huldar slóðir), samanstendur af lágstemmdri hljóðmynd og mörgum ólíkum áþreifanlegum skúlptúrum sem framkalla hljóð við snertingu og meðhöndlun. Bæði hljóð- og hugmyndaheimur innsetningarinnar sækir innblástur til bókasafna og þætti þeirra í hversdeginum. Þar sem bókasöfn eru íverustaðir sem bjóða upp á að rannsaka, uppgötva og verja tíma innan um og með bókum, í smágerðum og fínlegum hljóðheimi bókasafnanna.
Gestir eru hvattir til þess að nálgast innsetninguna á sama hátt, út frá forvitni og könnun þar sem þeir geta tekið þátt og rannsakað hljóðheim sýningarinnar með því að leika á skúlptúrana.
Verkið var pantað af hátíðinni Donaueschinger Musiktage og var upprunalega sett upp í Galerie im Turm á Donaueschinger Musiktage 2024.

Lilja María Ásmundsdóttir vinnur oft með skúlptúrísk einkenni hljóðs og efnis. Verk hennar taka á sig form innsetninga, hljóðskúlptúra, tónverka og sýninga þar sem ýmsar listgreinar mætast. Verkin eru hönnuð út frá því að skapa ferli sem varpa ljósi á hvernig hugmyndir verða til út frá því að vinna með mismunandi efnivið, í flæði á milli einstaklinga og í samhengi við umhverfi sitt.

Innsetningin er hluti af Myrkum Músíkdögum.

Nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri

gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6145