
Um þennan viðburð
Fjölskyldumorgnar | Krílahornið
Fjölskyldumorgnarnir eru óformlegar samverustundir, alla þriðjudagsmorgna. Þar myndast gott tækifæri til að kynnast öðrum fullorðnum með ungviði og skiptast á sögum um lífið, tilveruna og auðvitað börnin. Krílahornið er svæði í stöðugri þróun og tökum við gjarnan við hugmyndum frá aðstandendum ungra barna.
Heitt á könnunni fyrir þau fullorðnu og pelahitari á staðnum. Góð skiptiaðstaða er á salerni hússins.
Hittumst í Krílahorninu í Úlfarsárdal!
Bókasafnið á mikið til af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna. Hægt er að glugga í efnið á staðnum og korthafar geta fengið það lánað heim. Svo er auðvitað mikið úrval af krílabókum, til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum!
Tilvalið er að taka með sunddót og dýfa sér í Dalslaug eftir Krílastundina en laugin er í sömu byggingu og bókasafnið.
Allir fjölskyldumorgnar á Borgarbókasafninu.
Kynnið ykkur barnadeildir Borgarbókasafnsins.
Nánari upplýsingar veitir:
Tinna Birna Björnsdóttir, sérfræðingur
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is | 4116270