
Um þennan viðburð
Sumarsmiðja | Skopmyndagerð með Lóu Hlín
Safnið sem óx upp úr engu.
Hér gefst tækifæri til að kafa dýpra og æfa sig í teikningu, sagnagerð og persónusköpun með Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur. Frábær smiðja fyrir öll þau sem elska að semja sögur og teikna. Lóa sem er allt í senn, teiknari, rit- og myndasöguhöfundur, myndlistar- og tónlistarkona, hefur gefið út fjöldann allan af myndasögum undir nafninu Lóaboratoríum.
Í smiðjunni munum við leika okkur með texta, teikningar og myndasögur og búa til litlar bækur. Smám saman mun lítið bókasafn vaxa inni í Sólheimasafni.
Aldur: Börn fædd 2012, 2013 og 2014.
Tími: Smiðjan stendur yfir í þrjá daga 11. – 13. júní kl.10:00 – 12:00
Skráning hefst 29. apríl kl. 13 á sumar.vala.is
Hér má sjá lista yfir allar sumarsmiðjur Borgarbókasafnsins.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigrún Jóna Kristjánsdóttir, sérfræðingur
sigrun.jona.kristjansdottir@reykjavik.is | 411-6160