Fusion Groove

Um þennan viðburð

Tími
13:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
9-12
Tungumál
Íslensku
Börn
Tónlist

FULLBÓKAÐ!| Rafmagnaður taktur - Taktsmíðar með Fusion Groove

Mánudagur 12. ágúst 2024 - Miðvikudagur 14. ágúst 2024

Athugið að námskeiðið er fullbókað en hægt er að skrá sig á biðlista á sumar.vala.is

Er hægt að búa til lag úr fuglasöng? Hvernig bý ég til til reggaeton takt? Get ég búið til lag bara með aðeins þremur nótum? Í smiðjunni lærum við að búa til takta og grunn að lagi. Við klippum saman búta (samplers) úr tilbúnum hljóðum og tónlist, tökum upp ný hljóð og búum til eins konar hljóðfæri úr hljóðum í nærumhverfinu og poppmenningunni. Komdu í smiðjuna rafmagnaður taktur, gerum tilraunir saman og gefum sköpunargleðinni lausan tauminn.

Vigfús Karl er tónlistarmaður og plötusnúðurinn Fusion Groove. Hann hefur þeytt skífum alla sína fullorðinsævi og unnið í tónlistargeiranum í fjöldamörg ár við hin ýmsu verkefni. Hann er einnig frístundarleiðbeinandi og hefur lengi kennt börnum og ungmennum? raftónlistargerð og taktsmíðar.

Aldur: Smiðjan er fyrir börn fædd 2012, 2013, 2014 og 2015

Tími: Smiðjan stendur yfir i 3 daga kl. 13:00-15:00

Skráning á sumar.vala.is

Hér má sjá yfirlit yfir allar sumarsmiðjur Borgarbókasafnsins

Nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, sérfræðingur

gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6100