Um þennan viðburð

Tími
10:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
9-12 ára
Börn

FULLBÓKAÐ! Sumarsmiðja | Borðspilahönnun

Mánudagur 12. júní 2023 - Föstudagur 16. júní 2023

Allir geta hannað spil með rétta hugarfarinu, þar með talið þú!

Borðspil eru frábær afþreying með vinum og fjölskyldu. 

Í þessari smiðju munum við fyrst og fremst spila okkur til skemmtunar og læra ný spil. Þar að auki munum við gera æfingar sem byggja upp grunnþekkingu í leikjahönnun, spila spil okkur til innblásturs og að lokum prófa að hanna okkar eigin kortaspil.

Leiðbeinandi smiðjunnar, Steingerður Lóa Gunnarsdóttir, er menntaður leikjahönnuður og með einstaka þekkingu á borðspilum vegna vinnu sinnar til margra ára í Spilavinum.

Sjá viðburð á Facebook.

Skráning er hafin á sumar.vala.is.

Nánari upplýsingar veitir:

Sigrún Jóna Kristjánsdóttir
sigrun.jona.kristjansdottir@reykjavik.is |  411-6160 |